07september

Dekur

Ég er búin að vera dekra við mig bæði í gær og í dag. Átti það svo sannarlega skilið, Mannsi fær að hafa skotveiðar sem hobby og ég í fæ dekur og föt, er sko alveg sátt við það Glottandi
Ég fór sem sagt í litun og plokku í gær og klippingu og litun í dag og er hæst ánægð með útkomuna Koss

Var í prófi í dag í tannmunnsjúkdómafræði og gekk mér alveg rosalega vel þó ég segi sjálf frá, get ekki beðið eftir að fá einkunina. Er algjör nörd heheh Brosandi Svo tekur við bara næsta próf á þriðjudaginn þannig að öll helgin fer í lærdóm Óákveðinn Ég ætla samt að reyna að komast í IKEA og kaupa þessar hillur sem ég er búin að vera bíða eftir í 1 og hálft ár, þetta eru svona vegghillur sem festast við vegginn án þess að það sjáist einhverjar festingar, voða töff.
Það var bara aldrei til í eik eins og ég vildi fyrr en loksins núna þannig að ég verð að brúna í þangað að kaupa það áður en það selst upp eins og margt þarna gerir á no time og svo er endalaus biðtími eftir næstu sendingu.
07. september 2007 klukkan 15:28
María Óskarsdóttir
1 athugasemd
06september

Haustið komið

Halló, já ég er enn lifandi Brosandi

Ég veit að það er soldið langt síðan að ég skrifaði síðast en eins og hjá flestum þá hefur verið brjálað að gera hjá mér í sumar. Ég fékk vinnu á tannlæknastofu eins og flestir vita og var þetta skemmtilegasta sumarvinna sem ég hef unnið við og verður von bráðar mitt framtíðarstarf, vorið 2009 verð ég orðin TANNTÆKNIR Brosandi soldið langt þangað til ekki nema 1 ár og 9 mánuði.

Svo er ég búin að ferðast heilmikið í sumar þar sem ég í fyrsta skipti hef haft alvöru helgarfrí (frí á laugardögum og sunnudögum) þvílíkur lúxus og Mannsi líka. Við erum búin að fara einu sinni vestur í Grænuhlíð í sveitina til Mæju og Víðis, allt í 5 sinnum norður til Grenivíkur og svo skrapp ég í 2ja vikna ferð til Póllands að hitta familíuna, ég gat bara ekki sleppt því þetta sumar eins og ég ætlaði mér í byrjun því einn líður af sumarinu hjá mér er að fara ALLTAF til Póllands eins og ég hef gert síðan ég var 3ja mánaðar og ég mun alltaf heimsækja þau hvert ár Brosandi

Svo er skólinn byrjaður hjá mér á fullu. Verð svo fegin þegar þessi bóklega önn verður búinn. Ég á að vera að læra undir próf sem er á morgun í tannmunnsjúkdómafræði en í staðin eins og flestir gera þá er ég að reyna finna upp á einhverju skemmtilegu til dæmis að skrifa blogg eins og núna hehehe Brosandi 

Ég er í þvílíku skriftarstuði núna en ég held að ég verði bara að geyma allar sögurnar þangað til seinna, þetta endar bara eins og löng ritgerð hjá mér ef ég hætti ekki núna. En svo er svo týpískt að þegar ég ætla að skrifa eh. næst þá á mér ekki eftir að detta neitt í hug.

Jæja nú verð ég bara að láta þetta duga og vonandi er einhver hér sem kíkir ennþá á bloggið mitt, hef ekki mikla trú að því samt.

P.s. Muna að bursta tennurnar vel bæði kvölds og morgna og nota tannþráð. Við verðum að fjarlægja úrganginn (skítinn) sem bakteríurnar gefa frá sér.

06. september 2007 klukkan 15:51
María Óskarsdóttir
2 athugasemdir
25janúar

ójójój

Ég og Mannsi fórum í gær á Taco Bell og ég hef aldrei á ævi minni smakkað eins mikin viðbjóð Öskrandi Það sem var inní buritoinu mínu var bara eitthvað baunamauk ekkert annað, ógeð.
Serrano í Kringlunni er best í heimi, nóg af grænmeti, hrísgrjónum og kjúkling mmmmmm Ullandi Og svo er það svona hollasta sem hægt er að fá í skyndibitamat.
25. janúar 2007 klukkan 20:26
María Óskarsdóttir
5 athugasemdir
24janúar

Prófeinkun

jej, ég var að fá fyrstu einkunina í skólanum og ég fékk  9.5 í LOL (líf og lífeðlisfræði) Brosandi ég er náttúrulega ofsalega ánægð með þessa einkun.



24. janúar 2007 klukkan 18:00
María Óskarsdóttir
2 athugasemdir
15janúar

Pönnukökur

Ég var að búa mér til þykkar pönnukökur í kvöldmat og ég verð bara að segja að ég hef aldrei smakkað betri pönnukökur, þær voru geggjaðar Ullandi slurp

Ég verð að láta ykkur hafa uppskriftina Brosandi

Þykkar pönnukökur

3 egg,
3 msk sykur, hrært vel saman.
2 bollar hveiti,
1 og einn fjórði bolli súrmjólk,
1 og einn fjórði bolli mjólk
1 tsk bökunarsódi,
1 tsk lyftiduft
2 til 3 tsk kardimommudropar
smá olía
allt hrært vel saman og volia!

Ég setti ab-mjólk í staðin fyrir súrmjólkina sem ég á ekki  og svo þegar ég átti helminginn eftir af deiginu þá setti ég eplaskífur og kanil úti Brosandi

Verði ykkur að góðu

                                           pönnukökur
15. janúar 2007 klukkan 01:44
María Óskarsdóttir
2 athugasemdir
14janúar

Klaufi

Stundum get ég verið svo mikill klaufi að það er ekki fyndið og þá sérstaklega núna um helgina Skömmustulegur
Ég sem sagt var áðan í heimsókn hjá mömmu og pabba, og pabbi lætur mig hafa litla glerönd sem amma átti og hægt er að opna hana og geyma skartgripi inní. Pabbi vildi endilega láta mig hafa hana svo að hún myndi ekki brotna eða týnast hjá þeim og ég var svakalega ánægð. Svo þegar ég er á leiðinni heim þá náttúrulega hrasa ég og dett í snjónum og öndin brotnaði í pokanum Gráta Efri hlutinn brotnaði í þrennt en ekki neðri, þannig að það er kannski hægt að bjarga aumingja öndinni og líma hana saman. Þetta var sérstaklega leiðinlegt því að öndin var svo svona persónulegur hlutur.

Þetta er ekki búið því í gær þegar ég ætlaði að fá mér ávaxtate þá brenndi ég mig á heitri gufunni sem kom úr katlinum og mér brá svo mikið að ég rak hendinni í skápinn fyrir ofan hörkulega, svo að núna er ég bæði komin með brunasár öðrumegin og skrámur og marblett hinumegin Fýldur 
Svo braut ég sama glasið tvisvar Óákveðinn 

                                     herra klaufi


Gott að þessi helgi er að enda. Annars er ég öll að skána úr veikindunum og mun mæta í skólann á morgun Brosandi ég verð nú að vera jákvæð og setja einn broskall.
14. janúar 2007 klukkan 22:43
María Óskarsdóttir
Engin athugasemd
13janúar

Orðin veik :(

Jæja, nú er ég orðin veik Gráta er komin með hita, illt í hálsinum og með beinverki, ekki skemmtilegt. Ég sem verð eiginlega aldrei veik, ég var síðast lasin fyrir um 3 árum og þá fékk ég mjög slæma hálsbólgu. Mannsi er á svo leiðinlegri vaktatörn frá 15 til 23 þannig að hann getur ekki stjanað við mig, keypt pizzu og kók og leigt videó. Ég verð bara að elda mér sjálf núðlur og horfa á endurtekningar í sjónvarpinu. En sem betur fer er komin helgi þannig að ég vona að ég geti jafnað mig og verið frísk á mánudaginn þegar skólinn byrjar aftur. Mér líður alltaf svo óþægilega ef ég missi úr tíma. En talandi um skólann þá er ein vika liðin og er þetta rosalega skemmtilegt Brosandi Ég er í heilbrigisfræði, siðfræði, UTN sem er tölvufræði, bókfærsla og svo er ég í tveim LOL áföngum og þar læri ég anatomíu líkamans og starfsemi líffæra. Allt rosa skemmtilegt.

                                                giraffi
13. janúar 2007 klukkan 01:39
María Óskarsdóttir
Engin athugasemd
07janúar

New beginnig

Loksins byrja ég í skólanum á mánudaginn Brosandi Er búin að sækja stundatöfluna mína og líst mér bara rosa vel á þetta allt saman. Ég byrja alla daga klukkan 8 og er til
14-15. Ég verð síðan að vinna aðeins á fimmtudagskvöldum og laugardaga í Eymundsson.

Við Mannsi erum byrjuð í heilsuátaki og ætlum við að vera rosa dugleg að borða hollan mat og æfa. Ég ætla að byrja bara rólega þar sem ég er ekki mikil íþróttamanneskja. Það eru fullt af skemmtilegum tímum í baðhúsinu, yoga, body jam og rassa og læra tímar Brosandi Svo erum við bráðlega að fara á hvolpanámskeið með Sunnu þar sem við lærum að kenna henni ýmsa hluti og góðan aga. Hún er einmitt á mótþróaskeiðinu við mig þessa dagana en hún er ósköp ljúf og góð inná milli.

Þannig að það er margt skemmtilegt og gott að hefjast á nýju ári Brosandi

07. janúar 2007 klukkan 04:31
María Óskarsdóttir
Engin athugasemd
01janúar

2007

2007


GLEÐILEGT


NÝTT ÁR




01. janúar 2007 klukkan 22:58
María Óskarsdóttir
1 athugasemd
28desember

Jól

GLEÐILEG JÓL!!!  Brosandi

Ég vil þakka góðu fólki fyrir jólakortin, við Mannsi fengum haug af kortum en sendum ekki eitt einasta. Við vorum búin að búa til svaka flott jólakort hjá Hans Petersen með mynd af Sunnu og biðum og biðum eftir kortunum en svo hafði pöntunin glatast hjá þeim svo við fengum þau aldrei.

Við Mannsi og Sunna vorum fyrir norðan yfir jólin og var það rosalega notalegt. Brunuðum beint eftir vinnu síðasta föstudagskvöld og vorum komin seint um nóttina. Á þorláksmessu fórum við í skötuveislu í Miðgörðum sem er gistiheimili/bar á Grenivík, ég fékk mér nú bara saltfisk sem var svakalega gott. Svo um kaffileitið brunuðum við öll fjölskyldan til Akureyrar til að klára jólainnkaupin og settumst svo á Bláu könnunni og fengum okkur góðgæti. Svo var bara étið góðan mat og spilað Trivial út og inn og haft það notalegt. Ég kláraði loksins bókina Móðir í hjáverkum, ég veit ekki hvað ég er búin að vera lengi að lesa hana. Hún var ekkert spes fannst mér. Og núna er ég byrjuð á annarri sem Mannsi gaf mér í jólagjöf, Flugdrekahlauparinn Brosandi

Við Mannsi fengum jólagjafirnar eiginlega saman, við fengum fullt í stellið okkar sem við erum að safna, nú getum við boðið fólk í mat okkar Brosandi 
bækur, jólaskraut, DVD, skartgripi, gjafabréf og fullt af smádóti. Sunna fékk einnig leikföng sem hún er ekki búin að láta vera síðan á jólunum, við verðum að fara kaupa handa henni dótakassa svo dótið sé ekki út um alla íbúð Brosandi

Er að fara vinna á eftir, ég vildi að ég gæti fengi einn frídag í viðbót og slappað af uppí sofa og kúrt og lesið.

28. desember 2006 klukkan 14:04
María Óskarsdóttir
2 athugasemdir

Aðalvalmynd

Klukkan

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Bók á náttborðinu

Flugdrekahlauparinn

Tenglar

Leikur dagsins